Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

And I scream at the top of my lungs, What's going on.

14. október 2007 klukkan 15:45

Góðan dag. Langt síðan ég hef látið heyra frá mér. Ég nennti bara ekki að fara lesa í Egils Sögu svo ég ákvað bara blogga...Eins og gerist víst oft þegar maður á að vera læra þá er vinsælt að fara gera e-ð allt annað, eins og að blogga!:D

Allavega þá hefur örugglega fullt gerst á seinustu dögum en ég man bara ekki baun. Held ég þurfi að fara halda dagbók fyrir daginn svo eg viti um e-ð til að skrifa þegar ég blogga..ekki vitlaus humynd.

Skólinn gengur fínt og er búið að vera doltið mikið að gera í honum en þetta fer að fara verða rólegt aftur held ég. Svo er bara rosa stutt í prófin og jólafrí! Dí hvað ég hlakka til..vantar smá frí. Reyndar er miðannarfrí á næstuhelgi, föstudag til þriðjudag..very nice!

Á seinustu helgi man ég ekki alveg hvað ég gerði á föstudegjinum..Held rúntur en man ekkert með hverjum:S Svo á laugardaginn var ég bara vinna og fór svo til Önnu að passa um kvöldið og við gerðum okkur sætar og fínar þar og skunduðum svo í party til Sölva Páls eftir pössunina. Og þaðan lá leið okkar á Októberfest. Var e-ð vesen fyrst með þessa dyraverði en það reddaðist og var þetta bara hið fínasta ball. Bjóst nú ekkert við eithverju svakalegu balli, miðað við hvaða hljómsveitir áttu að vera..En ég skemmti mér bara mjög vel og dansaði nánast allan tíman. Svo eftir ballið rölti ég með Önnu heim því hún nennti ekki ein og við fórum bara upp í rúm að spjalla og horfa á Friends og sofnuðum svo.

Svo núna á föstudaginn fór ég til Reykjó með Hjalta bró. Vorum að kaupa e-ð efni í pils sem hann er að fara sauma handa mer:D og fórum svo í Kringlið að reyna versla e-ð fyrir afmælið hjá Veru og Feddu. Keyptum svona flott bjórglös handa þeim, ofsa fín. Keypti mer lika eitthverja geisladiska, rauðar sokkabuxur og of flotta Elvis veggklukku í Tiger á 400 kall!! Svo um kvöldið var ég bara með Önnu og Beggu og við horfðum bara á dvd og höfðum kósí.

Ííí gær fór ég svo í afmæli hjá Feddu og Veru. Var alveg mjög gaman og fullt af fólki. Koma myndir frá því hér inn innan skams.
Svo vaknaði ég bara eldhress í morgun og fór að taka til..Þreyf alla íbúðina og svona fínt. Svo er múttið mitt á leiðinni heim frá Danmörkinni góðu og kannski maður fái e-ð fínt frá kjellingunni;) Er svo núna að fara í sunnudags kaffi til ömmsl og afa.

Ætla ekkert að hafa þetta e-ð mikið lengra núna..

Blelli

Harpa Jónsdóttir
1 athugasemd

we're just two lost souls swimming in a fish bowl

20. september 2007 klukkan 18:30
Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket
Matarboð Poppycock Laugardaginn 15.september 2007

Sælar

Ég er búin að vera veik í billíens daga og fannst ég verða að láta heyra í mér.
Hálsbólga, kvef og hiti hafa átt í slagsmálum við ónæmiskerfið mitt og ég fæ að þjást fyrir það.
Ætlaði í skólann í morgun er var aftur orðin slöpp. En ég lofa að ég kem á morgun. fyrir ykkur sem söknuðuð mín.

Matarboðið okkar heppnaðist afbragðs vel. Æðislegur matur ala Gústa, Allir voða voða fínir og helt aðeins í stóru tánna.
Borðuðum lambalæri með brúnni sósu og kartöflur og í eftirrétt var frönsk súkkulaði kaka nýkomin úr ofninum. Og til að skola þessu niður vorum við með bollu.
Frændi minn kom svo með myndavélina sína og smellti af nokkrum myndum af okkur.
Eftir matarboðið skruppum við til Veru dönsku og heltum í okkur þar. Geðveikt skemmtilegt kvöld og þetta verður klárlega gert aftur!

Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket
Björg, Andrés, Harpa, Doddi, Anna, Teitur, Begga, Ása, Fjölnir, Finnur, Ögmundur og Róbert

Ég er á fullu að setja inn myndir frá síðustu atburðum og nú þegar eru komnar myndirnar frá Teit frá mataboðinu [á eftir að fá frá Hörpu og setja myndirnar hennar Önnu inn], myndir frá menningarnótt eru líka komnar og svo er ég að fara að minka myndirnar sem Ommi frændi minn tók og læt þær inn þegar ég get :)

Ég er búin að kaupa miða til London! 23.nóvember til 27.nóvember verð ég í London í æfingabúðum og að versla með Fjölni, Heiðu, Gústu, Björgu, Einari, Villa, Guðrúnu, Dísu, Helga, Eyþóri og Ragnari.. eða þetta er íslenski hópurinn sem fer í þessar æfingabúðir. Verður brjálað og mig hlakkar geðveikt til!

Það var ekki meira
Bless og Kex
frk.ása katrín

Poppycock
2 athugasemdir

And when the broken hearted people living in the world agree, there will be an answer, let it be.

03. september 2007 klukkan 17:23

The image “http://www.inkart.com/images/Line_Art_Addition/Rain.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.


Ojh! það er ógeðslegt veður og ég er ógeðslega þreytt ooog það er mánudagur og ég nenni ekki neinu! svooo auðvitað datt mér í huga að blogga.

Busaballið og Busavíxlan voru á föstudaginn og heppnaðist allt mjög vel..fyrir utan smá rifbeinsbrot, kveitiköst, brotna hurð og ofölvun var allt rosa flottGlottandi
Ég var bláedrú og fylgdist því vel með öllu sem gerðist og er stút full af allskonar slúðri.

Jájá..Skólin gegnur fínt, en er strax farin að hlakka til að komast í jólafrí. Flokkast þetta undir skólaleiða? Væri ekkert skrítið, enda hundleiðinlegur skóli. Ég veit ég er of bjartsýn!!

Ég er bara of löt fyrir lífið í dag! Ligg bara upp í sófa, í náttfötum og te og ætla bara vera svona í aaallan dag og vera pirruð útaf þessu ljóta veðri.

Ég er líka búin að plana það að ég hef ekki lengur áhuga á að eignast barn. Allavega ekki núna! Þetta er nasty.

Ammið mitt er orðin alveg 75 ára gömul. Hún átti afmæli á laugardaginn og við borðuðum öll saman hjá bróðir mömmu og var ekkert smá gaman og kreisí góður matur.

Shit! ég er bara að blogga til að blogga..Þetta er leiðinleg færsla. Ætti kannski að fara rífa mig upp á rassgatinu og skótast í þrek?

Svo er komið slatti af nýju í gullkorn, Kristínar vonandi til mikillar gleði og ánægju. Svo kemur slúður frá því af ballinu og fleira slíkt innan skamms

Jæja..Farin að gera ekki neitt.

Já! Þið fólk sem eruð í NFFA meigið endilega fara inn á þessa slóð http://www.vodafone.is/skolar og skrá ykkur í Vodafone og styrkið um leið nemendafélagið um 1.000 krónur og fáið inneign..held 2.000 kr.:) takk!!
Harpa
Harpa Jónsdóttir
3 athugasemdir

You've been blessed by a god with strange sense of humour. -The Who

30. ágúst 2007 klukkan 16:48
Góðan daginn

Í dag er einn dagur í busavíxluna og ballið og er partýfílingurinn farinn að hríslast um æðarnar. Mottó kvöldsins verður ,,nóttin er ung og óskrifað blað"!!
Begga busi verður busuð í klessu og svo þvegið af henni óþefinn!
Ögmundur tók frá helling af drasli úr skagaveri til að gera þetta spennandi

Vildi bara henda inn smá kveðju í tilefni af því að ég verð ekki brún, bara rauð og svo aftur hvít - frábært. Já og afþví að það er busaball og víxla á morgun.. jei!

Ég á að vera búin að læra, sturtu og reddast smá fyrir 6 þannig ég bara hef ekki tíma í lengri færslu. Fjölnir, Dúa og Sammi ætla að draga mig til Reykjavíkur í bíó á Astrópíu og að borða Svalur

Setti inn helling af myndum frá verslunarmannahelginni og svo koma myndir frá menningarnótt í kvöld .. eða morgun eða jafn vel laugardaginn.
Og svo eru alltaf að bætast inn ný gullkorn og fiskisögurnar eru í fullu fjöri.

Kex og Bless
frk. ása katrín

Poppycock
Engin athugasemd

Ţeeeegar Tumi fer á fćtur, viiiđ fyrsta hana gal...!

08. ágúst 2007 klukkan 21:45
Jæææja krakks. Við erum svona líka að  standa okkur í bloggleisinu..Shit erum svo dugleg!
Jæja. Þá er sumarið brátt á enda og hefur liðið allt of hratt!! Nenniggi skólaaa núna..ekki strax! Þetta sumar er allavega  búið að vera tja..frekar rólegt hjá mér mundi ég segja. Svona það sem ég hef gert er t.d:
  • Fór í kirtlatöku
  • Fór ekki á Deep Purple og Uriah Heep, allt þessum ljóta skít að ofan að kenna!!
  • Fór í sumarbústað með frændsystkinum mínum
  • Fór í fimmdugs afmæli
  • E-ð kreisí
  • Fór á Hróaskeldu
  • Fór til Akureyrar
  • og vinnavinnavinna
  • Fór uppí Skorradal
  • og örugglega fullt meira
Eins  og þið sjáið þá hef ég lítið djammað í sumar, samt eithvað en nánast bara ekki rass! Er bara búin að taka því rólega, s.s fór gjörsamlega langt út fyrir það sem við vorum búin að plana..Eða sem Ása var búin að planaGlottandi

En já, skólinn..Er víst að fara reyna hafa aga á þessum ólátabelgjum þetta árið, er víst að fara í Nemendafélagsstjórn FVA..úff!
En hún Beggið okkar er samt að koma upp í Fjölbraut og þá verður ofsagaman


Æji nenniggi að tala um skólann. Verð bara sifjuð á að tala um hann. Ég, Anna litla og Teitur ooog veit ekki hvort það séum fleiri, ætlum að skella okkur í hið bláa lón! verður bara gaman og nice.

Já..Mig hlakkar alveg ómótstæðilega mikið til þess að klára  þennan litla  lj... .fallega. skóla og flytja til DK eða London! dí get þúst alveg ekki beðið.

Svoo langar mig líka alveg ógisslega mikið að við, sætu krakkarnir förum að duurulla okkur upp í sumarbústað og hafa það kósí! Kannski bara í vetur þegar það verður orðið mjöög dimmt og svona..Hvað segjiði um það lömbin mín?Hlæjandi

Systir mín er svo að fara verða geðveikt glötuð og fara til TEXAS núna í endaðan ágúst og ætlar bara vera þar  geggjað glötuð í níu mánuði! Greyjið hún!!

Jájá..Svo er bara vinnuhelgi hjá mér frammundan og svoo Menningarnótt hina helgina og svo bara nokkrumdögum seinna...skóli!Gráðugur

Jææææja..veit bara ekkert hvað ég er búin að  vera skrifa hérna en það er þó vonandi eithvað, þó svo að það sé ekki fróðlegt! Hey..kom þó með eithvað : )

Veriði nú heil og sæl
Harpa
Harpa Jónsdóttir
12 athugasemdir

Verslunarmannahelgin

03. ágúst 2007 klukkan 19:34
Poppycock verða á víð og dreif um landið þessa alræmdu helgi! Eingöngu af því við erum sjálfboðaliðar og tókum það starf að okkur að dreifa ást um helgi ofsaaksturs og fyllerís.
Þið finnið ást ::
  • Í skorradal, hjá Hörpu og skátunum
  • Á akureyri, hjá Teit og Fjólu
  • Í Húsafelli hjá Andrési og Þorleif og fjölskyldu fólkinu
  • Á Brúarreykjum hjá Ásu, Dúu og nautgripunum!

Vonandi verður helgin sem allra best fyrir ykkur öll þó svo að þið komist ekki heim til ykkar, deyjið fyrir utan skuggaleg hús og munið ekkert hvað þið heitið.

Bless og Kex
frk. ása poppycock
Poppycock
3 athugasemdir

HRÓASKELDA

04. júlí 2007 klukkan 03:06
Jæja þá er loksins komið að því!

Eftir langa og stranga bið erum við, Ása, Teitur og Harpa að fara á Hróaskeldu.
Flugið er klukkan 7 eða korter yfir, ekki alveg með það á hreinu en við verðum allavega farin úr landinu klukkan 08:00 og komin aftur einhvern tíman á miðvikudaginn.

Vil endilega benda fólki á að tjékka dagskránna fyrir Hróaskeldu á http://www.roskilde-festival.dk/ til að fylgjast með okkur og svo voru ég og Harpa búnar að panta að fá að versla eins og vitleysingar og á mánudaginn sátum við inn í stofu hjá Hörpu að skoða fisketorvet.dk, verður kliiikkað!

En Harpa og faðir hennar fara mjög líklega að koma og pikka mig upp þannig ég segi bara bless og kex og hagið ykkur nú vel á írskum svona til tilbreytingar!

Anna og Andrés þið passið Þorleif!

Cheers Musers
frk.ása katrín sem hittir gyðjur og guði um helgina
Poppycock
5 athugasemdir

Nýjar myndir

02. júlí 2007 klukkan 03:17
Vildi bara benda fólki á að það eru komnar myndir frá partýi hjá Þorleifi um helgina og biðja fólk einnig um að bíða róleg eftir myndum frá Ítalíu.

..held samt að það hafi ekkert verið tekið neitt of mikið af myndum frá Ítalíu en við lofum að vera duglegri á Hróaskeldu!

Bara 2 dagar í Hróaskeldu!!!!!!


Bless og kex
frk. ása katrín

Poppycock
1 athugasemd

TIL HAMMÓ MEĐ AMMÓ LITLA!!:*:*

18. júní 2007 klukkan 19:50
Núna í dag eru nú liðin 17 ár frá því litla stelpan okkar kom í heimin! og er því þriðji meðlimurinn í þessum vinahóp til  þess að ná þessum fína aldri!:D


Hún á afmæl'í dag
Hún á afmæl'í dag
Hún á afmæl'ún ÁSA
Hún á afmæl'í dag!

Hún er 17 ára í dag
Hún er 17 ára í dag
Hún er 17 ára hún ÁSA
Hún er 17 ára í dag!:D


TIL HAMMÓ MEÐ AMMÓ DRÖSLA!!:*:*


 

 

 

 

Ása á góðum degi:)


Ógeðslega hott upp í sumó!




Ásan litla í hnotskurn!:*



Fyrir hönd Poppycock
Harpa

Harpa Jónsdóttir
2 athugasemdir

TILKYNNING

07. júní 2007 klukkan 20:50
Í  dag komu inn helling af myndum frá afmælinu hans Péturs, Partýi hjá Þorleifi og svo fundum við nokkrar myndri frá áramótunum. Endilega tjékkið á þessu og ef þið hafið eitthvað að segja um framlag okkar á þessari síðu endilega commentið hjá okkur.

Vildi líka benda ykkur á það að Teitur bloggaði! Já hann getur þetta kallinn ;*

(sorry að ég bloggaði ofan í færsluna þína Teitur músípúsípú :*:*:*)

Kex og Bless
frk.Ása Katrín

Poppycock
1 athugasemd